Já ekki búið að koma færsla hér síðan 19.apríl. síðastliðinn.. í síðasta bloggi fenuð þið að vita að ég náði bóklega prófinu.. svo þann 26. apríl náði ég verklega
ehhe ekki nema 2 villur og hef ég ekki drepið á kagganum mínum síðan ég fékk hann..
Margt hefur drifið á daginn síðan ég bloggaði síðast. í sumar var ég hér á akureyri og spilaði fótbolta með Þór 2. flokk og vermdi bekkinn hjá mfl... Við gerðum nokkuð góða hluti í 2.flokk. Unnum B-deildina og svo unnum við KA í úrslitaleik í vísa bikarnum og vorum við því tvöfaldir sigurvegarar. Í sumar vann ég líka á vellinum og svo eftir stórkostlega tveggja vikna utanlandsferð til spánar tók helvítið við.. ÉG var varla lenntur á Íslandi þegar ég keyrði norður því ég vildi ná Ísland Vs. Danmörk öldungarleik í fótbolta. En eftir þá helgi byrjaði ég í nýrri vinnu.... damm damm... Jú mikið rétt ég er maðurinn sem pakkaði goða kjötinu ykkar inn. það var frekar leiðinlegt svo eins gott að þið nutuð þessa að borða það..
nóg af sumrinu..
Þessi vetur er búinn að vera nokkuð góður það sem búið er af honum. mér gengur vel í flestum fögum sem ég er í og er prófa vika núna... lítið að gera hjá mér þá því ég er búinn með öll fögin nema 3 og þarf að far aí próf 6.des 11.des og 12.des. Ég og Sigríður byrjuðum aftur saman og gengur allt mjög vel hja okkur..
<3 á föstudaginn var æfingar leikur Þór Vs. Dalvík og fór hann 6:1 fyrir þór. seinna um kvöldið var árshátið MA og skellti maður sér á dannslekinn eftir sjálfan árshátíðarmatinn og það því VMA-ingar eru víst ekki leyfðir í því. Ég og Etna fórum í fínu fötin og dösnsuðum saman nánast allt kvöldið..
Fyrst gömlu dansana sem voru nokkuð skemmtilegir og svo hélt maður sig við diskóið í stað þess að dansa við Gus Gus.. ekki svo spennandi tónlist..

Ég og Sigríður komin í okkar fínni föt <3
ættla ekki að hafa þetta lengra.. er ekki alveg viss hve margir eigi eftir að lesa þetta því flestir halda að þessi síða sé alveg sten dauð.. Er samt forvitinn að vita hverjir hafa verið að kíkja inn á þessa síðu af einhverri ástæðu.. því stundum kíki ég á hana og þa hafa kansnki 10 verið búnir að kíkja a hana um daginn..
En takk fyrir mig.. kannski kemur annað blogg a morgunn og kannski eftir 2 mánuði
hehe kemur allt í ljós...